Flúðafjör

Sígild og skemmtileg flúðasigling niður Hvítá sem fléttar saman
fjöri og náttúrufegurð.

Allir í bátana!

Flúðasigling 19.990 kr.

Viðbótartilboð:
Bættu við borgara, drykk og frönskum +3.490 kr.

Innifalið er:
Flúðasigling niður Hvítá, aðgangur að heita potti og saunaklefa.

VERÐ

Aldurstakmark

Ferðin er ætluð fyrir 11 ára og eldri

Daglegar ferðir
klukkan 11:00 og 15:00
Frá maí - sept

Hafið samband ef þið viljið aðra tíma

TÍMALENGD FERÐAR
3 klst. frá Drumboddsstöðum.
8 klst. til og frá Reykjavík.

Brottfarir

Drumboddsstaði River Base, 806 Selfoss Sjá kort

Mæting er 15 mínútum fyrir brottför

STAÐSETNING

Létt - miðlungs erfiðleikar - mjög aðgengilegt flestum.

Hvítá er 2+ stig af 5 mögulegum.

ERFIÐLEIKASTIG

Flúðafjör með fari

BÓKA MEÐ FARI

Pikköpp frá Reykjavík innifalið. Upplifðu ógleymanlegt ævintýri í þessum heildar pakka með fari!

Rafting tour without transport

BÓKA ÁN FARS

Hittu okkur hjá Arctic Rafting, Drumboddsstöðum. Upplifðu sama ævintýrið á lægra verði!

Ferðalýsing

Ekki eftir neinu að bíða,

grípið í árina og skellum okkur út í jökulvatnsskvetturnar.

Allir í bátana!

  • Ferðin sjálf

    Ferðin hefst frá Drumboddsstöðum, þar sem allir þátttakendur fá búnað sem gerir þeim kleift að takast á við ána. Þaðan keyrum við stutta vegalengd alveg að árbakka Hvítár þar sem fjörið hefst. Fyrsta flúðin er rétt handan við hornið og í kjölfarið koma flúðirnar í bunu. Ferðin spannar sjö kílómetra í gegnum skemmtilegar öldur sem leiða okkur niður falleg gljúfur. Við fyllumst undrunar er við fljótum í gegnum hina margrómuðu og fallegu Brúarhlöð. Á þeim stað, ef aðstæður leyfa, höfum við boðið þeim sem vilja að stökkva fram af klettinum í ískalda jökulsánna.

  • Flúðasiglingar frá 1985

    Við hjá Arctic Rafting höfum siglt með fjölda fólks niður Hvítá með höfuðstöðvar okkar að Drumboddsstöðum / Drumbó frá árinu 1985. Flúðasiglingarnar í Hvítá hafa verið vinsæl afþreying meðal landsmanna, en áin er í senn ævintýraleg og vinaleg. Hún lofar alltaf góðu fjöri en fátt er skemmtilegra eða meira hressandi en að sigla niður flúðirnar yfir sumartímann í góðum hópi og fíling! Siglingin hentar flestum aldurshópum og ekki er gerð krafa um fyrri siglingareynslu. Ferðin er fyrir alla sem vilja upplifa ævintýri og reyna á brosvöðvana!

  • Heitir pottar, sauna og veitingar

    Drumboddsstaðir bjóða ekki einungis upp á flúðasiglingar. Á staðnum er að finna heita potta, sauna-klefa, veitingastað og bar. Við erum nýbúin að endurnýja búningsklefa og bæta við heilli viðbyggingu.

    Eftir hasarinn er tilvalið að ylja sér í saununni og heitu pottunum og jafnvel njóta í leiðinni veiganna sem í boði eru á veitingastaðnum okkar og bar.

 Gott að vita

  • 🌊 Flúðasigling niður Hvítá með sérþjálfuðum leiðsögumanni.

    🤿 Allur mikilvægur búnaður, blautgalli, björgunarvesti, neofren skór, hjálmur og ár.

    🌁 Fljótandi heimsókn í gegnum Brúarhlöður

    ♨ Sána, heita pottar og sturta til að hlýja sér eftir ferðina

    🥳 Upplifun í litlum hóp! Einungis 8-10 farþegar í hverjum flúðabát

  • Hlýja ullar- eða flíspeysu, ullarnærföt (föðurland) til að vera í undir blautgallanum og hlýja ullarsokka. Þetta gæti allt blotnað á meðan á ferðinni stendur. Við mælum ekki með því að klæðast bómullarfötum því þau halda ekki á þér hita ef þú blotnar.

    Sundföt til að vera í undir neofren buxunum á ánni og í sánunni!

    Föt til skiptana

  • Það þarf að mæta á Drumboddsstaði amk 15 mínútum fyrir áætlaða brottför svo við höfum tíma til að fara yfir mikilvæg öryggisatriði og klæða okkur upp fyrir ferðina.

    Þú getur greitt aukalega og bókað skutl til og frá Reykjavík frá fyrirfram ákveðnum staðsetningum. Þá fer heildartíma ferðarinnar upp í 8 klukkustundir með skutlinu.

    Þessi ferð hentar börnum sem eru 11 ára og eldri. Ef þú ert á ferð með yngri börnum sem eru sólgin í ævintýri þá eru börn frá 8 ára aldri velkomin í Flúðafjör með Fjölskyldunni með okkur, en sú ferð er farin á sama tíma svo öll fjölskyldan ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Það er síðan ekkert efra aldurstakmark í ferðina en mikilvægt að vera heilbrigður og treysta sér út í öldur jökulárinnar.

  • Drumbó (Drumboddsstaðir) eru höfuðstöðvar okkar þar sem allar flúðasiglingar hefjast.

    Þar finnur þú:

    Búningsherbergi
    Sturtur
    Heitir pottar
    Sauna
    Bar og kaffihús
    Veitingastað

  • Lambakjöts- grillveisla eftir ána - 5.690 kr

    Hamborgari og franskar - 3.490 kr

    Go Pro Leiga- 3.990 kr

    Vatnsheld einnota myndavél - 4.990 kr

    Skutl til og frá Reykjavík - 8.000 kr

  • Já þú getur komið með myndavélina þína, hinsvegar ef hún er ekki vatnsheld þá mun hún pottþétt eyðileggjast.

    Því hefur þú þessa möguleika:

    1. Þú átt vatnsheldna myndavél og tekur hana með þér (gott er að hafa band með).

    2. Þú leigir GoPro frá okkur á Drumbó

    3. Þú kaupir einnota vatnshelda myndavél frá okkur á Drumbó

    4. Þú kaupir plastvasa hjá okkur, sem gerir síman vatnsheldan.

    5. Stundum er hægt að kaupa myndir af okkur, þegar bílstjórinn tekur myndir af ferðinni.

  • Já það er mikilvægt að geta synt ef ské kynni að þú dettur í ánna. 🏊‍♀️

  • Í Flúðafjör er 11 ára aldurstakmark.

    Í Fjölskylduflúðafjör er 8 ára aldurstakmark. Sú ferð er sérstaklega útfærð með börn frá 8-1 ára aldri í huga.

    Það er hinsvegar ekki aldursþak, bara að vera heilbrigður og að treysta sér til þess að fara í kalda jökulsá.

  • Já, ef þú getur ekki verið án þeirra. Við mælum með að koma eða kaupa Chums af okkur á Drumbó.